Við vonumst til að sjá sem flest á styrktarleik í KR-heimilinu laugardaginn 19. september kl 14:00. Viðskiptablaðið fjallaði um málið.
KR-ingar taka á móti Víkingum í Bestu deildinni næsta laugardag á Meistaravöllum. Samkvæmt tilkynningu munu KR-ingar nýta krafta sína til góðs og hvetja áhorfendur til að festa kaup á sérstökum KRaftsaðgöngumiða á leikinn.
KRaftsaðgöngumiðinn er 1.500 krónum dýrari en venjulegur aðgöngumiði og mun allur ágóði renna óskertur til Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk með krabbamein.
Einnig verður hægt að styrkja Kraft með 1.500 króna framlagi án þess að kaupa aðgöngumiða á leikinn.
„Það er ánægjulegt að við KR-ingar getum stutt við öflugt starf Krafts. Kraftur er mikilvægt félag sem grípur ungt fólk með krabbamein. Við hvetjum sem flesta til að fjölmenna á leikinn á laugardag og sýna kraft í verki með því að kaupa Kraftstaðgöngumiða,“ segir Magnús Orri Schram, formaður knattspyrnudeildar KR.
Síðustu ár hefur KR látið sig góðgerðarfélög varða og styrkt hin ýmsu félög og í ár er komið að Krafti.
Félagið segir að árlega greinist um 90 ungir einstaklingar með krabbamein á Íslandi og leggur Kraftur sig fram við að styðja við félagsfólk og létta því lífið með fjölbreyttri þjónustu á borð við fjárhagslegan- og félagslegan stuðning. Félagið er alfarið rekið fyrir velvild almennings og fyrirtækja í landinu.
„Við erum einstaklega þakklát KR fyrir að nýta sinn stóra vettvang til að vekja athygli á Krafti og styðja við starf okkar í leiðinni. Það er sérstaklega gaman að vera KR-ingur í dag og fylgjast með uppgangi liðsins og svo gleður það enn meira þegar svona stór félög axla samfélagslega ábyrgð á borð við áðurnefndan styrktarleik á laugardag,“ segir Eva Sigrún Guðjónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Krafts.