Aðalfundur Krafts stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, verður haldinn í Skógarhlíð 8, Reykjavík, miðvikudaginn 17.apríl kl. 20
Dagskrá aðalfundar:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Endurskoðaðir reikningar
- Ákvörðun árgjalds
- Kosning stjórnar
- Önnur mál
Formaður Krafts skal kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn. Hlín Rafnsdóttir sem verið hefur formaður síðustu tvö ár gefur áfram kost á sér sem formaður.
Óskað er eftir framboðum til stjórnarsetu.