Skip to main content

Minningarsjóður Krafts

By 11. júlí 2019mars 25th, 2024Fréttir

Minningarsjóður Krafts var stofnaður 9. júlí síðastliðinn í minningu góðs félaga, Bjarka Más Sigvaldasonar, sem lést þann 27. júní eftir 7 ára baráttu við krabbamein. Sjóðurinn var stofnaður til að heiðra minningu hans og þeirra góðu gilda sem hann stóð fyrir þ.e. að láta veikindin ekki stjórna lífi sínu heldur lifa fyrir daginn í dag.  

Tilgangur sjóðsins er að styrkja aðstandendur til að standa straum af útfararkostnaði þegar félagsmaður Krafts fellur frá vegna krabbameins eða afleiðingum þess. Útfararkostnaður er oft mjög mikill og bætist við þann kostnað sem þegar hefur verið greiddur vegna undanfarinna veikinda hins látna. Auk þess hafa félagsmenn Krafts margir hverjir ekki verið á vinnumarkaði um skeið og hafa því ekki rétt á dánarbótum stéttarfélaga. 

Allur ágóði af sölu minningarkorta Krafts rennur óskiptur í þennan sjóð.

Nánari upplýsingar um minningarsjóð Krafts og umsóknir í hann má sjá hér.

Hér má sjá brot úr viðtali við Bjarka þar sem endurspeglast lífsviðhorf hans og það sem hann vill miðla til annarra.

Við getum öll heiðrað minningu Bjarka með því að
muna að njóta lífsins í dag – Lífið er núna