Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Að klífa brattann – Hafravatn

14. ágúst 2021 @ 11:00 - 13:00

Næsta ganga gönguhópsins Að klífa brattann verður laugardaginn 14. ágúst kl. 11:00.

Við ætlum í skemmtilega göngu í kringum Hafravatn og byrjum gönguna frá Vatnsvíkinni þar sem við ætlum að hittast á bílastæðinu kl 11: 00 . Falleg leið sem er á flestra færi. Gengið verður í kringum vatnið þar sem stígar eru á jafnsléttu og lítið um hækkun, en gott að hafa í huga að hluti gönguleiðarinnar er á malarstíg og fara þarf fyrir nokkrar sprænur og þvi gott að vera í góðum skóm. Gangan er um 5 km og tekur í 1 og hálfan til 2 tíma. Komum saman og njótum þess að vera úti að hreyfa okkur í fallegri náttúru í útjaðri Reykjavíkur.

Endilega meldaðu þig á viðburðinn hér

Ef þið viljið sameinast í bíla endilega látið okkur vita

 

Að klífa brattann er gönguhópur fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur sem kraftskonurnar Ragnheiður Guðmundsdóttir og G. Sigríður Ágústsdóttir stofnuðu, en þær hafa mikið notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum.

Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja. Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin. Endilega meldið ykkur svo við getum áætlað fjöldann.

Hægt er að ná í Hrefnu eða Huldu í síma: 866-9600

 

Upplýsingar

Dagsetning:
14. ágúst 2021
Tímasetning:
11:00 - 13:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/571179564049301

Staðsetning

Hafravatn
Hafravatnsvegur Iceland + Google Map
View Staðsetning Website