Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Að klífa brattann – Helgafell Mosfellsbæ

27. nóvember 2021 @ 11:00 - 13:00

Næsta ganga gönguhópsins Að klífa brattann verður laugardaginn 27. nóvember kl. 11.

Við ætlum að ganga hringinn í kringum Helgafellið í Mosfellsbæ. Hringurinn er um 6 km með um 150 metra hækkun. Gangan hentar flestum getustigum en fyrir suma væri gott að hafa meðferðis göngustafi.

 

Við ætlum að hittast hér 

 

Beygt er inn á Þingvallarveg frá Vestulandsvegi. Ekið er um 1,7 km þar til komið er að malarvegi á hægri hönd. Malarvegurinn er ekinn þar til komið er að gatnamótum, um 2,6 km og þar ætlum við að taka hægri beygju þar og er bílastæðið um 100m ofar á hægri hönd.

Endilega meldaðu þig á viðburðinn hér svo við getum áætlað fjöldann, því við viljum ekki skilja neinn eftir 

 

Ef þið viljið sameinast í bíla endilega látið okkur vita

 

Að klífa brattann er gönguhópur fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur sem kraftskonurnar Ragnheiður Guðmundsdóttir og G. Sigríður Ágústsdóttir stofnuðu, en þær hafa mikið notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum.

Ragnheiður sér um að leiða göngurnar ásamt Atla Má Sveinssyni þjálfara FítonsKrafts.

Ragnheiður (sími: 663-9360)
Atli (sími: 663-2252)

Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja. Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin.

 

Upplýsingar

Dagsetning:
27. nóvember 2021
Tímasetning:
11:00 - 13:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/184333627205909

Viðburðahaldari

Að klífa brattann – Gönguhópur
Sími
866-9600
Email
kraftur@kraftur.org
View Viðburðahaldari Website