Laugardaginn, 15. ágúst, ætlum við í skemmtilega göngu í kringum Reynisvatn og Hólmsheiði við Grafarholt. Falleg og skemmtileg leið sem er á flestra færi. Gengið verður í kringum vatnið og í fallegu skógarrjóðri við vatnið. Gangan tekur um klukkustund. Komum saman og njótum þess að vera úti að hreyfa okkur í fallegri náttúru í útjaðri Reykjavíkur.
Við munum hittast á bílastæðinu rétt við Reynisvatn – nánar tiltekið þessu bílastæði hér
Að klífa brattann er gönguhópur fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur sem Kraftskonurnar Ragnheiður Guðmundsdóttir leiðir en hún hefur notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum.
Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja.
Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin. Endilega meldið ykkur á Facebook viðburðinum
Ragnheiður (sími: 663-9360)