Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Að klífa brattann – Skammidalur í Mosfellsbæ

29. janúar 2022 @ 11:00 - 12:30

Að klífa brattann

Næsta ganga gönguhópsins Að klífa brattann verður laugardaginn 29. janúar kl. 11.

Við ætlum að ganga um Skammadal og Álafosskvosina í Mosfellsbæ. Þægileg vetrarganga og hentar öllum, en við mælum með góðum skóbúnaði.

Hittum á bílastæðinu bak við Reykjalund. Þegar komið er að Reykjalundi þarf að fara framhjá aðalbílastæðinu og keyra svo vinstra meginn við bygginguna til að komast að bílastæðinu.

Endilega meldaðu þig á viðburðinn hér svo við getum áætlað fjöldann, því við viljum ekki leggja af stað án þín 

Ef þið viljið sameinast í bíla endilega látið okkur vita

Að klífa brattann er gönguhópur fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur sem kraftskonurnar Ragnheiður Guðmundsdóttir og G. Sigríður Ágústsdóttir stofnuðu, en þær hafa mikið notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum.

Ragnheiður sér um að leiða göngurnar ásamt Atla Má Sveinssyni þjálfara FítonsKrafts.

Ragnheiður (sími: 663-9360)
Atli (sími: 663-2252)

Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja. Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin.

Upplýsingar

Dagsetning:
29. janúar 2022
Tímasetning:
11:00 - 12:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/431143218714132

Viðburðahaldari

Að klífa brattann – Gönguhópur
Sími
866-9600
Email
kraftur@kraftur.org
View Viðburðahaldari Website