Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Að klífa brattann – Vatnahringurinn í Heiðmörk

20. mars 2021 @ 11:00 - 13:00

Laugardaginn 20. mars ætlar gönguhópurinn Að klífa brattann að ganga Vatnahringinn í Heiðmörkinni.

Hittumst klukkan 11:00 bílastæðinu við Helluvatn. Best er að fara inn í Heiðmörkina Rauðhólameginn og keyra beina leið þar til þú kemur að brú hjá Elliðarvatni, ferð yfir brúna og þar er bílastæði á vinstri hönd.

Vatnahringurinn er 7,5 km langur og tekur gangan um 1,5 til 2 klukkustundir. Gengið er eftir göngustígum í skóglendinu sem og meðferð vatninu. Frábær ganga fyrir fyrir alla til að geta tekið þátt 🙂 Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin.

Endilega meldið ykkur á viðburðinn hér. 

Að klífa brattann er gönguhópur sem Kraftskonan Ragnheiður Guðmundsdótttir leiðir en hún hefur notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum.

Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja.

Ragnheiður (sími: 663-9360) og Hrefna (866-9698)

Þú getur fylgst með okkur á Facebook og beðið um inngöngu í hópinn hér: https://www.facebook.com/groups/472685906595268/

Hér er mynd af Heiðmörk og gönguleiðinni til að átta sig betur

Upplýsingar

Dagsetning:
20. mars 2021
Tímasetning:
11:00 - 13:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/2766936913558639/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website