Aðalfundur Krafts verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl á 4.hæð Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8 og hefst kl. 18:00.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi liðins starfsárs.
3. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
4. Tillaga að breytingum á rekstrarformi félagsins
5. Lagabreytingar
6. Tillaga stjórnar um leiðréttingu á kjöri meðstjórnenda í stjórn félagsins.
7. Kjör stjórnar
8. Kjör löggilts endurskoðanda reikninga félagsins og skoðunarmenn reikninga úr hópi félagsmanna
9. Ákvörðun um félagsgjald
10. Önnur mál
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa skuldlausir félagsmenn.
Hvetjum áhugasama félagsmenn til að senda fyrirspurn varðandi framboð til stjórnar Krafts á framkvæmdastjóra á netfangið
hulda@kraftur.org.
Framboð skulu berast eigi síðar en miðvikudaginn 6.apríl.
Hlökkum til að sjá sem flesta félagsmenn á aðalfundi félagsins 7.apríl.