Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Axarkast með FítonsKrafti

15. maí 2021 @ 12:00 - 13:00

Laugardaginn 15. maí kl. 12:00 ætla þau hjá Berskerkir að bjóða félagsmönnum okkar að koma og reyna fyrir sér í Axarkasti.

 

Axarkastið fer fram á Víðistaðatúni í Hafnarfirði og er því gott að klæða sig eftir veðri. Við ætlum að hittast á bílastæðinu við Víðistaðatún og er gott að vera mættur 5 til 10 mínútur í tólf.

 

FíotnsKraftur heldur mánaðarlega opna viðburði þar sem allir félagsmenn okkar geta komið og upplifað margs konar útivist og/eða hreyfingu. Viðburðurinn er opinn öllum en skráning er nauðsynleg. Ef fleiri skrá sig en pláss er fyrir, ganga þeir fyrir sem eru virkir í FítonsKrafti – endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda.

 

SKRÁNING FER FRAM HÉR

 

Atli Már Sveinsson þjálfari FítonsKrafts heldur utan um hópinn en hægt er að ná í hann í síma 663-2252 eða senda honum póst á fitonskraftur@kraftur.org

Hægt er að skrá sig í FítonsKraft hér og einnig geta þeir félagsmenn sem nýta sér FítonsKraft óskað eftir inngöngu í FB-hóp FítonsKrafts.

 

Upplýsingar

Dagsetning:
15. maí 2021
Tímasetning:
12:00 - 13:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/517396466090380

Staðsetning

Víðistaðatún
Hjallabraut 15
Hafnarfjörður, 220 Iceland
+ Google Map