Sunnudaginn 9. október frá 11 til 12 ætlum við að hoppa og skoppa af endalausri gleði í Rush Iceland.
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna
FítonsKraftur heldur mánaðarlega opna viðburði þar sem allir félagsmenn okkar geta komið og upplifað fjölbreytilega útivist og/eða hreyfingu.
Viðburðurinn er opinn öllum en skráning er nauðsynleg því takmörkuð pláss eru í boði en SKRÁNING FER FRAM HÉR
Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband í síma 866-9698 eða í gegnum kraftur@kraftur.org
Einnig er hægt er að skrá sig í FítonsKraft hópinn hér en þar setjum við allt það helsta varðandi hreyfingu og útivist sem er í boði hjá Krafti
Atli Már Sveinsson þjálfari FítonsKrafts heldur utan um hópinn en hægt er að ná í hann í síma 663-2252 eða senda honum póst á fitonskraftur@kraftur.org