Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

FítonsKraftur – Fyrstu skrefin í ræktina, námskeið

26. september @ 17:00 - 18:15

Fyrstu skrefin í ræktinni – námskeið í tækjasal

Námskeiðið er ætlað til að koma þér af stað í ræktinni hvort sem þú ert byrjandi eða sért að koma þér aftur af stað eftir pásu. Námskeiðið hentar öllum, krabbameinsgreindum og aðstandendum, byrjendum sem lengra komnum. Áhersla er lögð á vöðvauppbyggingu, þol og líkamsbeitingu.

Námskeiðið er í formi hópeinkaþjálfunar í tækjasal. Atli Már Sveinsson íþróttafræðingur sér um námskeiðið en hann hefur sérhæft sig í endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda.

Iðkendur svara spurningalista við upphaf námskeiðs og út frá því er útbúin einstaklingsmiðuð æfingaáætlun.

Þátttökugjald er 3.500 kr.

Skráning fer fram hér

Markmið námskeiðsins eru:
– Koma iðkendum af stað í líkamsrækt
– Ná tökum á helstu æfingum sem tengjast líkamsrækt og hreysti.
– Iðkendur upplifa vellíðan við að hreyfa sig.

Staðsetning og tími:
Heilsuklasinn, Bíldshöfði 9
Þriðjudagar og fimmtudagar kl.17:00-18:15
8 vikna námskeið
frá 17. september – 7. nóvember

*Athuga að námskeiðið er ekki ætlað þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í endurhæfingu. Við hvetjum fólk til að kynna sér starfsemi Ljóssins enduhæfingarmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda.

Upplýsingar

Dagsetning:
26. september
Tímasetning:
17:00 - 18:15
Series: