Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

FítonsKraftur – Njóttu þín í núinu: 6 vikna jóganámskeið

15. nóvember 2021 @ 20:05 - 21:15

Njóttu þín í núinu: kraftur, mýkt og slökun – 6 vikna jóganámskeið fyrir félagsmenn Krafts, krabbameinsgreinda og aðstandendur.

Á námskeiðinu vinnum við með öndun, hugleiðslu, styrk, liðleika og endum hvern tíma á góðri slökun. Stundum verðum við kröftug reynum á styrkinn okkar og stundum mjúk og róleg og leggjum meiri áherslu á kyrrðina. Tímarnir ættu að henta all flestum sem vilja taka smá stund fyrir sig til að hreyfa líkamann, róa hugann og taugakerfið og gefa sér tíma til að slaka á.

Mikilvægast er að hver og einn hlusti á líkamann sinn og geri eins mikið og hann leyfir hverju sinni, það þarf aldrei að gera allt eða fara alla leið.
Allur yogabúnaður er á staðnum en gott að taka með sér sundföt og handklæði ef þú vilt fara í spaið.

Eftir tímann er svo tilvalið að slaka á í spainu þar sem er að finna saunu, heitan og kaldan pott og flotlaug. Spaið og búningsklefarnir eru opnir til kl. 22:00.
Kennari: Ása Sóley Svavarsdóttir

Staðfestingargjald 2.500 kr.

Markmið námskeiðsins eru:

  • Iðkendur fái innsýn inn í mikilvægi öndunar og styrkingu líkamans með fjölbreyttri hreyfingu.
  • Iðkendur nái tökum á grunntækni mismunandi jóga aðferða.
  • Iðkendur upplifi vellíðan og slökun.

Staðsetning og tími:

  • Yoga&Heilsa, Ármúla 9 – gengið inn um aðalinngang Hótel Íslands. Þaðan liggur stigi niður í móttöku Silfra Spa og yogastúdíósins.
  • Kennt mánudaga og miðvikudaga kl.20:05-21:15
  • 6 vikna námskeið, frá 8. nóvember til 15. desember

Skráning fer fram hér

Upplýsingar

Dagsetning:
15. nóvember 2021
Tímasetning:
20:05 - 21:15
Series:
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/401619624957954

Viðburðahaldari

FítonsKraftur

Staðsetning

Yoga&Heilsa
Ármúli 9
Reykjavík, 108 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website