Njóttu þín í núinu: kraftur, mýkt og slökun – 6 vikna jóganámskeið fyrir félagsmenn Krafts, krabbameinsgreinda og aðstandendur.
Á námskeiðinu vinnum við með öndun, hugleiðslu, styrk, liðleika og endum hvern tíma á góðri slökun. Stundum verðum við kröftug reynum á styrkinn okkar og stundum mjúk og róleg og leggjum meiri áherslu á kyrrðina. Tímarnir ættu að henta all flestum sem vilja taka smá stund fyrir sig til að hreyfa líkamann, róa hugann og taugakerfið og gefa sér tíma til að slaka á.
Mikilvægast er að hver og einn hlusti á líkamann sinn og geri eins mikið og hann leyfir hverju sinni, það þarf aldrei að gera allt eða fara alla leið.
Allur yogabúnaður er á staðnum en gott að taka með sér sundföt og handklæði ef þú vilt fara í spaið.
Eftir tímann er svo tilvalið að slaka á í spainu þar sem er að finna saunu, heitan og kaldan pott og flotlaug. Spaið og búningsklefarnir eru opnir til kl. 22:00.
Kennari: Ása Sóley Svavarsdóttir
Staðfestingargjald 2.500 kr.
Markmið námskeiðsins eru:
Staðsetning og tími: