Ykkur er boðið í jóga!
Fimmtudaginn 5.apríl frá kl. 17:30 – 18:30 ætlar Elín Skúladóttir félagsmaður í Krafti og jógakennari að leiða okkur í gegnum mjúkt vinyasa flæði, þar sem lögð verður áhersla á góðar djúpar teygjur, öndun og djúpa slökun í lokin.
Elín Skúladóttir hefur kennt yoga í rúm tíu ár. Hún lærði yoga í Bretlandi og sigldi fyrst um sinn um höfin blá og kenndi yoga á skemmtiferðarskipi. Eftir að hún kom í land hefur hún kennt hot yoga í heimabæ sínum, Hafnarfirði. Elín er meðlimur Krafts en hún greindist með brjóstakrabbamein snemma árs 2017.
Yoga tíminn verður í vinyasa stíl, það við flæðum úr einni stöðu í þá næstu. Við helgum tímann kraftinum sem er ríflegur í félagsmönnum krafts því við vitum að það þarf kraft til að takast á við krabbamein.
Tíminn hentar bæði byrjendum sem lengra komnum svo allir ættu að geta tekið þátt á sínum forsendum.
Þetta er opinn viðburður á vegum FítonsKrafts svo allir félagsmenn eru velkomnir.
Athugið að tíminn verður í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í þetta skipti.
Hlökkum til að sjá ykkur 🙂