Kæru velunnarar og stuðningsmenn hlaupara
Hvetjum ykkur til að mæta með læti á laugardaginn 19.ágúst og hvetja þá fjölmörgu hlaupara sem eru að fara hlaupa fyrir Kraft og Krabbameinsfélagið í Reykjavíkurmaraþoninu.
Félögin verður með hvatningarstöð á Ægissíðunni við Dunhaga. Þetta mun örugglega ekki fara fram hjá ykkur þar sem við verðum appelsínugul bak og fyrir með stóran borða með Kraftslogoinu og fána Krabbameinsfélagsins.
Maraþonið og 1/2 maraþonið er ræst kl. 8:40 og 10 km. hlaupið er ræst kl. 9:35 svo gott er að mæta ekki mikið seinna en kl. 10 en starfsfólk Krafts og KÍ verður mætt kl. 8:30 fyrir “early birds”.
Boðið verður upp á kaffi og meððí fyrir hvatningarliðið okkar 🙂
Minnum ykkur á lokanir gatna vegna maraþonsins en upplýsingar um það má finna hér. https://marathon.is/kort/
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Huldu framkvæmdastjóra í síma: 866 9600.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest 🙂