StrákaKraftur ætlar að skella sér í Indverskan hermikappakstur miðvikudaginn 14. desember.
Spennandi hittingur þar sem strákarnir úr Krafti og Ljósinu ætla að hittast og fara út að borða á Austurlandahraðlestinni Grensásvegi og bruna svo í GT Akademíuna í hermikappakstur.
Við hvetjum unga karlmenn að skella sér, hitta aðra í sömu stöðu og eiga góða kvöldstund saman.
Strákar sem eru í endurhæfingu hjá Ljósinu geta mætt í tækjasal Ljóssins klukkan 17:00 fyrir viðburðinn til að taka vel á því með Stefáni íþróttafræðingi og skellt sér svo á skemmtilegu strákastundina. Förum út að borða klukkan 18:30 á Austurlandahraðlestina og mætum svo í kappaksturinnhermirinn klukkan 20:00.
Endilega skráðu þig hér svo við vitum hversu margir ætla að skella sér á þessa frábæru stund.