Keila og matur á Shake and Pizza í Egilshöll klukkan 18:30 miðvikudaginn 9. nóvember
Spennandi hittingur þar sem strákarnir úr Krafti og Ljósinu ætla að hittast og skella sér í skemmtilega strákastund í Egilshöll.
Við hvetjum unga karlmenn að skella sér, hitta aðra í sömu stöðu og eiga góða kvöldstund saman 🍕🎳
Strákar sem eru í endurhæfingu hjá Ljósinu geta mætt í tækjasal Ljóssins klukkan 17:00 fyrir viðburðinn til að taka vel á því með Stefáni íþróttafræðingi og skellt sér svo á skemmtilegu strákastundina í Egilshöll.
Endilega skráðu þig hér svo við vitum hversu margir ætla að skella sér á þessa frábæru stund