Laugardaginn 10.desember, ætlum við að fara í notalega og jólalega göngu um Heiðmörk 🎄 Auðveld leið á flestra færi, þar sem lítið er um hækkun. Göngum saman í svona 45 til 60 mínútur.
Komum saman og njótum þess að vera úti að hreyfa okkur í fallegri náttúru í útjaðri Reykjavíkur.
Eftir gönguna ætlum að ylja okkur og fylla á orkuna með heitum kakóbolla og piparkökum ☕ og jafnvel einhverjum leikjum. Einnig er kjörið að skella sér í jólaþorpið við Elliðavatnsbæ eftir gönguna, þannig að endilega takið alla fjölskylduna með <3
Við munum hittast á bílastæði á Heiðmerkurveginum þar sem er nóg af bílastæðum.
Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin. Endilega meldið ykkur á Facebook viðburðinum