Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Kósý jólaganga í Heiðmörk

12. desember 2020 @ 11:00 - 12:30

Laugardaginn 12.desember, ætlum við að fara í notalega og jólalega göngu um Heiðmörk 🎄 Auðveld leið á flestra færi, þar sem lítið er um hækkun. Gengin verður merkt leið sem er um 4,1 km hringur. Gangan tekur um 45 til 60 mínútur. Komum saman og njótum þess að vera úti að hreyfa okkur í fallegri náttúru í útjaðri Reykjavíkur.

Eftir gönguna ætlum að ylja okkur og fylla á orkuna með heitum kakóbolla og piparkökum ☕ Einnig er kjörið að skella sér í jólaþorpið við Elliðavatnsbæ eftir gönguna, þannig að endilega takið alla fjölskylduna með <3

Við munum hittast á bílastæði á Heiðmerkurveginum þar sem er nóg af bílastæðum.

Við hjá Krafti viljum að allir fari eftir fyrirmælum Almannavarna og minnum ykkur því á að virða fjarlægðina við óskylda einstaklinga.

Að klífa brattann er gönguhópur fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur sem Kraftskonurnar Ragnheiður Guðmundsdóttir leiðir en hún hefur notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum.

Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja.

Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin. Endilega meldið ykkur á Facebook viðburðinum

Hægt er að ná í Hrefnu í síma: 866-9698 eða Huldu í síma: 866-9600 fyrir frekari upplýsingar.

Upplýsingar

Dagsetning:
12. desember 2020
Tímasetning:
11:00 - 12:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/140310260865251?active_tab=about

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website