Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Viðeyjarferð – Krabbamein fer ekki frí

6. júlí 2022 @ 17:00 - 20:30

Kraftur ætlar að skella sér út í Viðey undir yfirskriftinni Krabbamein fer ekki í frí.

Við ætlum við að hittast miðvikudaginn 6. júlí klukkan 17:00 á Skarfabakka þaðan sem Viðeyjarferjan fer. Við siglum svo yfir í Viðey þar sem við förum í leiki og grillum saman. Þú þarft ekki að taka neitt með þér nema góða skapið. Mikilvægt er að skrá sig og sína hér fyrir ferjuna. 

Þetta er fyrsti viðburðurinn af tveimur undir yfirskriftinni  Krabbamein fer ekki í frí  sem við höldum í júlí fyrir félagsmenn okkar. Þar er megin markmiðið að koma saman, njóta útivistar og líðandi stundar. Viðburðirnir eru bæði fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein sem og aðstandendur og er tilvalin stund fyrir vini og fjölskyldu að koma saman.

Krabbamein fer ekki í frí er vitundarvakning Krafts sem snýr að því að þótt fólk fari í sumarfrí þá fer krabbamein ekki í frí. Oft getur verið minni starfsemi og þjónusta yfir sumartímann hjá þjónustuaðilum sem sinna krabbameinsgreindum og aðstandendum. Við hjá Krafti höfum því tekið saman opnunartíma hjá ýmsum aðilum. Þótt þjónustan sé takmarkaðri þá skiptir máli að vita hvert maður getur leitað sér læknishjálpar, ráðgjafar og stuðnings,

Upplýsingar

Dagsetning:
6. júlí 2022
Tímasetning:
17:00 - 20:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/duplicate/1034455097092973

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Viðey
Skarfabakka
Reykjavik, Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website