Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Kraftur á Grænahrygg

25. júlí 2023 - 27. júlí 2023

Ekki missa af þessu frábæra gönguævintýri! 

Við ætlum að endurtaka leikinn frá því í fyrra og skella okkur í ævintýralega ferð með Midgard Adventure, en í þetta sinn ætlum við að fara í dagsögnu um náttúruundur Torfajökuls og Landmannalauga dagana 25. til 27. júlí.

Gengið er í hlíðum Skalla, um Uppgönguhrygg, í Hattver, Jökulgil og að Grænahrygg og höfum við hjá Krafti fengið einstakt tækifæri til að bjóða okkar félagsmönnum upp á frábæra upplifun um þessa einstöku gönguleið í fylgd með reyndum leiðsögumanni frá Midgard Adventure. Eftir göngu mun hópurinn gæða sér á grilluðum hamborgara og kældum drykkjum í Landmannalaugum. Eftir mat er ekið að Midgard Base Camp þar sem fólk getur mýkt stirða vöðva í heitum potti og gufubaði áður en lagst til hvílu í uppábúinni koju.

Dagskrá:
25. júlí – Gistum á Midgard Base Camp.
26. júlí – Göngum Grænahrygg og gistum aftur á Midgard Base Camp
27. júlí – Morgunverður og heimför

Skráning er nauðsynleg og staðfestingargjald er 5.000 kr. og verður sent út þegar skráningarfrestur rennur út 25. júní nk.

Hvað er innifalið?

  • Gönguleiðsögn
  • Skutl frá Midgard Base Camp að Landmannalaugum þar sem gangan hefst
  • Hamborgari og drykkur í Landmannalaugum
  • Skutl frá Landmannalaugum að Midgard Base Camp
  • Gisting í tvær nætur í uppábúinni koju á Midgard Base Camp
  • Morgunverður báða morgnana
  • Undirbúningsfundur kvöldið fyrir gönguna
  • Aðgangur að heitum potti og sauna á Midgard Base Camp

Hvað er EKKI innifalið?

  • Allur göngubúnaður, skór, stafir, fatnaður o.s.frv.
  • Kvöldverður 25. júlí
  • Nesti í göngunni – hægt að óska eftir sérstökum nestispakka frá Midgard fyrir 4.000 kr aukalega
  • Nasl og drykkir á Midgard Base Camp
  • Keyrsla að Midagard Base Camp Hvolsvelli

Gangan er fyrir alla félagsmenn í Krafti
Við mælum ekki með að börn komi í gönguna.

Gönguleiðin er tæknilega einföld, fyrir utan vað á Jökulkvíslinni. Leiðin er ca. 20 km löng. Við mælum með vaðskóm og göngustöfum á þessari göngu.

Frekari útbúnaðarlisti verður sendur á þátttakendur.

Nú er bara um að gera að SKRÁ sig og fara hlakka til því þetta er svo sannarlega ævintýri sem þú munt alltaf geyma í hjartastað. Takmarkað pláss í boði svo það borgar sig að skrá sig sem fyrst.

Skráning er nauðsynleg og staðfestingargjald er 5.000 kr. og verður sent út þegar skráningarfrestur rennur út 25. júní nk.

Vinsamlegast sendið tölvupóst á adventure@midgard.is með upplýsingum um þá sem ætla í gönguna.

Upplýsingar

Byrjar:
25. júlí 2023
Lýkur:
27. júlí 2023
Vefsíða:
https://fb.me/e/15w3Nel3W

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Midgard Base Camp
Duftþaksbraut 16
Hvolsvöllur, 860 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website