Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Sumargrill Krafts 2023

22. júní 2023 @ 17:00 - 19:00

Sumargrill Krafts verður haldið hátíðlega í Guðmundarlundi fimmtudaginn 22. júní milli 17 og 19.

Dagskráin verður ekki af verri endanum:

🧡 MAGNÚS KJARTAN EYJÓLFSSON heldur uppi sannkallaðri brekkusöngs stemningu

🧡 LEIKHÓPURINN LOTTA flytur söngvasyrpu með brotum af því besta
🧡 SIRKUS ÍSLANDS verður með andlitsmálun og blöðrulistamann
🧡 KRAKKAHESTAR verða með hesta og reiða undir krakkana
🧡 HOPPUKASTALAR fyrir krakkana
🧡 INSTAMYNDIR mætir með myndakassa
🧡 HAMBORGARABÚLLA TÓMASAR verður með hamborgara og franskar

🧡 ÍSBÍLLINN mætir á svæðið með ís fyrir alla

Vinsamlegast meldið ykkur á viðburðinn með því að smella hér,  svo við vitum ca. fjölda þeirra sem mæta upp á að hafa nóg af mat fyrir mannskapinn

Þetta verður dásamlegur dagur fyrir alla fjölskylduna og hvetjum við gamla sem og nýja félagsmenn að fjölmenna og fagna með okkur í sumarblíðunni.

—————

Guðmundarlundur er rétt hjá hesthúsunum við Heimsenda í Kópavogi (Elliðavatns megin). Breiðholtsbraut er ekin í átt að Víðidal, beygt á ljósunum við Vatnsendahvarf (hjá World Class og Bónus). Keyrt er eftir Vatnsendavegi þar til komið er í þriðja hringtorgið þá er tekin síðasta beygjan að Þingmannaleið. Þar er skilti sem segir Heimsendi. Sú gata er keyrð þar til Heimsendi er á hægri hönd og þá á að vera skilti á vinstri hönd sem segir Guðmundarlundur. Keyrt upp á hæðina þar til komið er að skógræktarsvæði með grænu hliði, þar er Guðmundarlundur. Við munum líka setja appelsínugular merkingar til að vísa þér leiðina.

Upplýsingar

Dagsetning:
22. júní 2023
Tímasetning:
17:00 - 19:00
Vefsíða:
https://fb.me/e/4JNsqvy9n

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Guðmundarlundur
Guðmundrarlundur
Kópavogur, 203 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website