Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Kröftug strákastund á Kexinu

12. mars @ 19:30 - 21:00

Í tilefni af Mottumars heldur Kraftur Kröftuga strákastund á Kexinu, þriðjudagskvöldið 12.mars frá kl. 19:30-21:00. Markmiðið með stundinni er að karlmenn sem þekkja krabbamein af eigin raun eða sem aðstandendur hvort sem maki, sonur, faðir, afi, vinur eða jafnvel samstarfsaðili hittist, deili reynslu sinni og heyri í öðrum jafningjum.

Reynsluboltar koma og segja frá

  • Sóli Hólm, skemmtikraftur, sem mun segja frá sinni reynslu og sjokkinu við það að greinast með krabbamein og verkefninu að ná heilsu að nýju en hann greindist með eitlakrabbamein árið 2017.
  • Tómas Þór Þórðarsson, íþróttafréttamaður, mun segja frá sinni reynslu hvernig er að vera maki en konan hans greindist með mergæxli fyrir um tveimur árum síðan.
  • Vinirnir Rafn Heiðdal og Skúli Andrésson munu segja frá því hvernig þeir tækluðu veikindi Rafns og hvernig áhrif það hafði á vinskap þeirra.
  • Hilmar Orri Jóhannsson segja frá því hvernig var að greinast með eistnakrabbamein sem nýbakaður pabbi og í miðju háskólanámi og hvernig vegferðin hefur verið eftir krabbameinsmeðferðina.

Í lok stundarinnar munu tónlistamaðurinn Valdimar taka nokkur lög.

Matti Osvald Stefánsson, heilsufræðingur og markþjálfi Ljóssins og Róbert Jóhannsson, umsjónarmaður StrákaKrafts, munu leiða þessa kraftmiklu strákastund.

Það er ókeypsi á viðburðinn og verða tilboð á veitingastaðnum Flatus á Kexinu fyrir stráka sem mæta á svæðið. Vinsamlegast meldið ykkur á Facebook viðburðinn.

Við mælum með að allir karlmenn standi með sínum og mæti á þessa flottu strákastund – taktu endilega með þér vin því við getum ábyggilega allir speglað okkur í einhverjum af þeim reynsluboltum sem munu stíga fram og segja frá sinni reynslu. Það getur verið gott að heyra hvernig aðrir hafa tæklað hlutina.

Sjáumst á Strákastundinni!

Upplýsingar

Dagsetning:
12. mars
Tímasetning:
19:30 - 21:00
Vefsíða:
https://fb.me/e/1LQgE20hw

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

KEX hostel
Skúlagata 28
Reykjavík, Reykjavík 101 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website