NÝ DAGSETNING VERÐUR AUGLÝST SÍÐAR
Námskeið fyrir maka krabbameinsgreindra.
Námskeiðið er ein kvöldstund, í tvo tíma, en ef þátttakendur óska eftir þá verður boðið upp á paranámsskeið í framhaldinu.
Flest fullorðið fólk stundar kynlíf og það er partur af lífsgæðum fólks að halda því áfram þrátt fyrir veikindi, en það getur verið erfitt að finna taktinn þegar annar aðilinn er veikur eða hefur verið veikur í einhvern tíma.
Námsskeiðið er fyrir maka krabbameinsgreindra, þar sem farið verður yfir tegundir kynlífs, já, kynlíf er ekki bara samfarir og farið er yfir hvernig má takast á við veikindi eða afleiðingar veikinda og eiga samt gott kynlíf.
Námskeiðshaldarar eru
Áslaug Kristjánsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur og
Kristín Þórsdóttir, markþjálfi og kynsnillingur. Námskeiðið er í formi fræðslu og umræðu.
Skráning fer fram í gegnum
skráningarform
Nýtt námskeið verður 1.okt. kl. 18-20, tími tvö yrði síðan ákveðinn af hópnum saman.
Frekari upplýsingar veitir Kristín Þórsdóttir,
eldmodur@eldmodurinn.is, s: 693 7224