Kraftur í samstarfi við Krabbameinsfélagið á Akureyri og nágrennis stendur fyrir fræðslu og samveru fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur fimmtudaginn 12.september kl. 17-19.
Anna Sigurðardóttir sálfræðingur mun vera með erindi um gagnleg bjargráð í veikindum og boðið verður upp á samræður eftir á. Þá mun Kraftur og Krabbameinsfélag Akureyrar vera á staðnum og kynna starfsemi sína og þann stuðning sem þau veita.
Viðburðurinn er fyrir unga eintaklinga á aldirnum 18-40 ára sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur á öllum aldri. Boðið verður upp á súpu og léttar veitingar.
Vinsamlegast skráið ykkur hér.
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Kraft, kraftur@kraftur.org, eða Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, kaon@krabb.is.Hvetjum öll sem eiga erindi til að mæta og eiga saman stund meðal jafningja sem að skilja þig.