Kraftur í samstarfi við Krabbameinsfélagið á Akureyri og nágrennis stendur fyrir fræðslu og samveru fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur fimmtudaginn 30.janúar kl. 17-18. Guðrún Arngrímsdóttir hjá Sjálfsrækt verður með erindi um sjálfsmildi í eigin garð.
Viðburðurinn er fyrir einstaklinga á aldrinum 18-45 ára sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur á öllum aldri.
Fyrir þetta erindi þarf að fá skráningu, skráning fer fram á kaon@krabb.is eða í síma 461-1470. Gefa þarf upp nafn, fjölda og símanúmer.
Hvetjum öll sem eiga erindi til að mæta og eiga saman stund meðal jafningja sem að skilja þig.