Fimmtudaginn 23. janúar, kl.17:30 fögnum við nýju “Lífið er núna” vitundarvakningu okkar sem er jafnframt stærsta fjáröflun félagsins. Af því tilefni er þér er boðið í partý til að fagna með okkur!
Frumsýnd verður auglýsing vitundarvakningarinnar, kynnum nýju Lífið er núna húfuna til leiks og opnum dyrnar að glæsilegri Tótu Van Helzing sýningu í Gallerí Port í húsi Rammagerðarinnar, en Tóta er fyrrum félagsmaður Krafts og var stórkostleg listakona.
DJ Dóra Júlía heldur uppi stuðinu, en auk þess koma fram:
- Jónsi
- Hipsumhaps
- Una Torfa
Fordrykkur í boði TÖST ásamt gómsætum bitum og að sjálfsögðu verður Lífið er núna húfan til sölu.
Herlegheitin fara fram í glæsilegri verslun Rammagerðarinnar á Laugavegi 31 (gamla kirkjuhúsinu), uppi á 2. hæð.
Hlökkum til að sjá þig og þína!