- Þessi viðburður er liðinn.
Páskabingó Krafts

Það eru að koma páskar og það þýðir bara eitt, páskabingó Krafts!
Að því tilefni ætlum við að halda páskabingó fyrir félagsmenn þann 30. mars á 4. hæðinni í Skógarhlíð 8. Bingóið hefst kl. 18:00 svo um að gera að mæta tímanlega!
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Allir sem fá BINGÓ fá súkkulaði með sér heim.
Glæsileg páskaegg í boði Sanbó, Nóa Siríus og Góu.
Bingóstjóri er enginn annar en Lalli töframaður!!
Að sjálfsögðu er ókeypis á viðburðinn og hver og einn fær eitt spjald við innganginn.
Svo við vitum hvað margir mæta vinsamlegast meldið ykkur hér á viðburðinn.