Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti í Borgarnesi

4. júní 2022 @ 13:00 - 17:00

Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætlar að standa fyrir mögnuðum perluviðburði í Borgarnesi laugardaginn 4.júní í tilefni af vitundarvakningu félagsins.

Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem fór í sölu 16.maí en armbandið verður selt í takmörkuðu upplagi.

Perlunin fer fram á Landnámssetrinu og er opið hús frá klukkan 13 til 17.  Þetta er tilvalið tækifæri til að eiga góða og skemmtilega stund með fjölskyldu og vinum, og um leið leggja góðu málefni lið

Endilega kíktu á Facebook viðburðinn okkar þar sem við munum setja inn frekari upplýsingar. Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum til að við getum fyllt Landnámssetrið af góðhjörtuðum perlum.

Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.

Hlökkum til að sjá þig !

Upplýsingar

Dagsetning:
4. júní 2022
Tímasetning:
13:00 - 17:00

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Landnámssetur Íslands
Brákarbraut 13 - 15
Borgarnes, 310 310
+ Google Map
Sími
4371600
View Staðsetning Website