Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætlar að perla armbönd sunnudaginn 21. janúar í Hörpu í tilefni af vitundarvakningu félagsins.
Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem fer í sölu núna í janúar og er hluti af okkar árlegu fjáröflunar- og vitundarvakningu.
Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.
Við höfum fengið Evu Ruzu og Hjálmar Örn með okkur í lið og ætla þau að halda uppi stuðinu allan daginn. Við eigum svo von á góðum gestum á svæðið.
Fram koma:
Veitingar í boði:
Það er um að gera að fylgjast með Facebook viðburðinn okkar þar sem við munum setja inn frekari upplýsingar. Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum til að við getum fyllt Hörpu.
Perlunin fer fram í Flóa á fyrstu hæð Hörpu það verður opið hús frá klukkan 13 til 17. Tilvalið tækifæri til að eiga skemmtilega stund með fjölskyldu og vinum, og um leið leggja góðu málefni lið