Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætlar að perla fyrir austan föstudaginn, 2. febrúar í Nesskóla í Neskaupstað.
Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem verður til sölu í fjáröflunar- og vitundarvakningu Krafts sem stendur nú yfir.
Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.
Það er um að gera að fylgjast með Facebook viðburðinn okkar þar sem við munum setja inn frekari upplýsingar. Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum til að við getum fyllt skólann.