- Þessi viðburður er liðinn.
Perlað af Krafti með Akureyringum

Akureyringar verða við áskorun Eyjamanna.
Munu Akureyringar hreppa Perlubikarinn?
Kraftur leggur leið sína norður og perlar með Akureyringum, ÍBA, Þór og KA í Íþróttahöllinni á Akureyri sunnudaginn næstkomandi 6.maí frá kl. 13-17.
Við skorum á alla Akureyringa að mæta á svæðið til þess að ná perlubikarnum af Eyjamönnum.
Armböndin eru í íslensku fánalitunum og verða seld til stuðnings Krafti og munu einnig sýna samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.
Eyjamenn perluðu 1538 armbönd á fjórum tímum og þurfa Akureyringar að ná því til að eiga möguleika á að hreppa perlubikarinn. Perlubikarinn hlljóta þeir viðburðarhaldarar sem að ná að perla sem flest armbönd.
Við hvetjum alla Akureyringa sem og leikmenn og stuðningsmenn KA, Þór og ÍBA að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.
Það verður að sjálfsögðu heitt á könnunni og hlökkum við til að sjá ykkur sem flest
KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥