Kraftur leggur leið sína austur fyrir fjall og ætlar að perla með Selfyssingum og nágrönnum í samstarfi með Krabbameinsfélagi Árnessýslu þriðjudaginn 25. október frá kl. 16:30 – 19:30 í Sunnulækjarskóla.
Perlað verður nýjasta Lífið er núna armbandið sem fór í sölu 16. maí en armbandið verður selt í takmörkuðu upplagi.
Endilega meldaðu þig á FB viðburðinum okkar hér…
Við hvetjum alla til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.
Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – en einnig verður hægt að kaupa armböndin á staðnum.
Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!
KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥