FítonsKraftur býður upp á samflot á nýju ári í samstarfi við Andagift súkkulaðisetur í sundlaug Álftanes þann 30.janúar frá kl. 20 – 21:30. Yndislegt að taka meðvitaða ákvörðun að fljóta inn í nýja árið, samþykkja allt sem kemur, sleppa tökunum af ótta og streitu.
Fyrir þá sem vilja verður í boði að skála í súkkulaði fyrir utan sundlaugina og látum okkur síðan fljóta í innilauginni með lifandi tónheilun og djúpslökun. Flotbúnaður verður á staðnum.
Súkkulaðið sem boðið verður upp á kemur frá regnskógum Guatemala og er 100% hreint. Það er handunnið frá baun í bolla, stútfullt af magnesíum og andoxunarefnum og hefur verið notað í þúsundir ára til þess að opna hjartað.
Lára Rúnarsdóttir jógakennari og tónlistarkona og Tinna Sverrisdóttir tónheilari og súkkulaðiseiðkona munu leiða stundina og fljóta með okkur inn í nýjar árið.
Viltu fljóta með?
Þá þarftu að skrá þig hér. Takmarkað pláss er í lauginni svo við verðum að vita fjölda þeirra sem mæta. Viðburðurinn er félagsmönnum okkar að kostnaðarlausu,
Hlökkum til að fljóta með ykkur ♥
ANDAGIFT og FÍTONS