StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 – 4o ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist annað hvert miðvikudagskvöld ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8, eða annarsstaðar.
Við erum að vinna í dagskránni fyrir vorið og munum við bæta inn viðburðum jafn óðum og þeir eru staðfestir.
Janúar
Mið. 16.janúar – Silkitónheilun í Eden Yoga kl 17:15
Mið. 29. janúar – Kósý í Krafti kl. 19-21
Febrúar
Mið. 12.febrúar – Galdrastund í Unalomi með Lindu Sæberg kl. 20
Mið. 26. febrúar – Skiljum við verkina með Sóley Stefánsdóttur – Kósý í Krafti kl. 19 til 21
Mars
Mið. 12. mars – Jana (Kristjana Steingrímsdóttir) Heilsumarkþjálfi og jógakernnari, kíkir í heimsókn með girnilegt góðgæti og ætlar að fræða okkur um hvernig hægt er að gera litlar breytingar í mataræði í átt að heilsusamlegri lífstíl. Kósý í Krafti kl. 19 til 21.
Mið. 26. mars – Páskaeggjagerð með Útúrkú – nánari upplýsingar koma síðar.
Apríl
Mið. 9. apríl – Kósý í Krafti kl 19.00 – nánari dagsrká kemur síðar.
Mið. 23. apríl – Ilmupplifun hjá Fishersundi kl 17.30.
Maí
Mið. 7. maí – Kósý í Krafti
Mið. 21. maí –
Júní
Mið. 4. júní – Kósý í Krafti
Mið. 18. júní – Stefnum á kósýlegan hitting á kaffi Flóru.
Frekari upplýsingar um viðburði verða settar inn á FB – hóp StelpuKrafts og er hægt að óska eftir inngöngu í hópinn hér.
Umsjón með hópnum hefur Viktoría Jensdóttir formaður Krafts og félagsmaður hjá Krafti sem hefur sjálf reynslu af því að greinast ung með krabbamein. Hægt er að hafa samband við hana í gegnum formadur@kraftur.org eða í síma 866-9600
Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.