StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 – 40 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist að jafnaði annan hvern miðvikudag kl 18:00 ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8, eða annarsstaðar.
Þann 14. febrúar kl 18:00 ætlum við að kíkja saman í forvitnilega heimsókn í Losta í Borgartúni 3.
Endilega meldið ykkur á viðburðinn til að við vitum hver þátttakan er.
Nánari upplýsingar á Facebook hóp StelpuKrafts.
Umsjón með hópnum hefur Linda Sæberg, stjórnarmeðlimur og félagsmaður í Krafti, sem hefur reynslu af því að greinast ung með krabbamein. Hægt er að hafa samband við Lindu í gegnum linda@kraftur.org eða í aðalsíma Krafts 866-9600.
Frekari upplýsingar um viðburði verða settar inn á FB – hóp StelpuKrafts og er hægt að óska eftir inngöngu í hópinn hér.
Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.