Sumarfögnuður StelpuKrafts verður haldinn miðvikudaginn 19.júní frá kl. 20-22 þar sem við fögnum sumarsólstöðum og þökkum fyrir samveruna í vetur. Verður þetta síðasti viðburður hópsins fyrir sumarfrí.
Viðburðurinn verður haldinn í salnum Leiðin heim – Holistic center, Laugarvegi 178. Áróra Helgadóttir jógakennari með meiru mun leiða stundina.
Nánari upplýsingar og skráning inn á Facebook hóp StelpuKrafts.
StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 – 40 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist að jafnaði annan hvern miðvikudag ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8, eða annarsstaðar.
Umsjón með hópnum hefur Linda Sæberg, félagsmaður í Krafti, og Hulda Hjálmarsdóttir, starfsmaður hjá Krafti. Þær hafa báðar reynslu af því að greinast ungar með krabbamein
Frekari upplýsingar um viðburði verða settar inn á FB – hóp StelpuKrafts og er hægt að óska eftir inngöngu í hópinn hér.
Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.