StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 – 40 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist að jafnaði annan hvern miðvikudag kl 18:00 ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8, eða annarsstaðar.
StelpuKrafts-ferð í Þórsmörk – Hópurinn kemur saman á Midgard Base Camp á fimmtudagsmorgun kl. 9.
Þetta verður skemmtilegur göngudagur með sirka 8-12 km langri göngu. Við viljum hafa leiðarval sveigjanlegt eftir aðstæðum og munum velja skemmtilegustu leiðina hverju sinni. Eftir göngu verður haldið til baka á Midgard Base Camp. Þar mun hópurinn gæða sér á grilluðum hamborgara og kældum bjór eða gosi. Í framhaldi er tilvalið að mýkja stirða vöðva í heitum potti og gufubaði. Þegar úthaldið er búið er lagst til hvílu í uppábúinni koju.
Skráning fer fram inn á vef Midgard Adventure og er 2000 kr skráningargjald.
Nánari upplýsingar á Facebook hóp StelpuKrafts.
Umsjón með hópnum hefur Linda Sæberg, stjórnarmeðlimur og félagsmaður í Krafti, sem hefur reynslu af því að greinast ung með krabbamein. Hægt er að hafa samband við Lindu í gegnum linda@kraftur.org eða í aðalsíma Krafts 866-9600.
Frekari upplýsingar um viðburði verða settar inn á FB – hóp StelpuKrafts og er hægt að óska eftir inngöngu í hópinn hér.
Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.