Þriðjudaginn 25. júní ætlar StrákaKraftur að skella sér í frisbígolf í Laugardalnum. Ætlum við að hittast kl. 20 en auglýsum síðar hvar nákvæmlega við verðum. Frisbígolfið er þér að kostnaðarlausu ef þú ert í StrákaKrafti.
StrákaKraftur er stuðningshópur fyrir unga karlmenn á aldrinum 18 til 45 ára sem greinst hafa með krabbamein.
Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn hér: https://www.facebook.com/groups/374984316345091/
Umsjónarmenn StrákaKrafts eru Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krafts og Birkir Már Birgisson, félagsmaður Krafts.
Frekari upplýsingar veitir Birkir í síma (660-2780) eða Þorri í síma (866-9618).