Ertu góðhjartaður reynslubolti sem villt nýta reynslu þína öðrum til góða?
Stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í Stuðningsnetinu verður haldið í tveimur pörtum mánudagana 21. og 28. nóvember, frá klukkan 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið á fyrstu hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Námskeiðið er bæði ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og hafa lokið við krabbameinsmeðferð sem og aðstandendum, sem vilja styðja við einstaklinga sem lenda í svipuðum sporum.
Til að taka þátt á námskeiðinu þarf að skrá sig á netfanginu thorri@krabb.is eða með því að fylla út þetta skráningarform.
Boðið verður upp á kvöldmat bæði kvöldin í boði Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins sem starfrækja Stuðningsnetið.
Frekari upplýsingar má sjá hér.
„Það sem hjálpaði mest var að hitta aðra sem höfðu lent í svipuðum sporum, Kraftur bjargaði geðheilsunni minni….“
26 ára félagsmaður sem greindist með ristilkrabbamein