Kraftur heldur reglulega stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í Stuðningsnetinu fyrir reynslubolta sem geta nýtt reynslu sína öðrum til góða.
Næsta stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa verður haldið á Akureyri laugardaginn 14.september frá kl. 10-17. Námskeiðið verður haldið hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar, Glerárgötu 34, 2.hæð.
Námskeiðið er ætlaði fólki búsettu á norðurlandi, bæði þeim sem greinst hafa með krabbamein sem og aðstandendum, sem vilja styðja við einstaklinga sem lenda í svipuðum sporum.
Til að taka þátt á námskeiðinu þarf að fylla út þettta skráningarform. Einnig veitir Þorri sálfæðingur frekari upplýsingar í pósti á thorri@krabb.is.
Á námskeiðinu er m.a. veitt þjálfun í samtalstækni, að deila reynslu sinni á viðeigandi hátt og að setja mörk. Ásamt því að farið verður yfir ýmis málefni sem oft fylgja krabbameinsveikindum eins og erfiðar tilfinningar, hvar má nálgast upplýsingar, aðstoð fagaðila, samskipti í fjölskyldum, að tala við börn um krabbamein og fleira.
Boðið verður upp á hádegisverð og komið verður til móts við þá sem ekki búa á Akureyri og þurfa að ferðast lengri vegalengdir til þess að komast á námskeiðið.
Umsjónarmaður námskeiðsins er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og umsjónarmaður Stuðningsnetsins.
Frekari upplýsingar og Stuðningsnetið má sjá á heimasíðu Krafts.
Ekkert þátttökugjald er á námskeiðinu.
Kraftur og Krabbameinsfélagið starfrækja Stuðningsnetið.