Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Sumargrill Krafts

23. júní 2022 @ 18:00 - 20:00

Sumargrill Krafts verður haldið hátíðlega í Guðmundarlundi þann 23. júní milli 18 og 20.

Dagskráin verður ekki af verri endanum:

  • EMMSJÉ GAUTI  stígur á stokk
  • HRINGLEIKUR fjöllista – og sirkushópur verður með atriði
  • SIRKUS ÍSLANDS með andlitsmálun og blöðrulistamann
  • REIÐSKÓLINN HESTALÍF reiðir undir krakkana
  •  HOPPUKASTALAR fyrir krakkana
  • INSTAMYNDIR – myndakassi frá Instamyndum fyrir gesti Sumargrillsins
  • HAMBORGARABÚLLA TÓMASAR  verður með hamborgara fyrir mannskapinn

Vinsamlegast meldið ykkur á viðburðinn og skráið ykkur hér svo við vitum ca. fjölda þeirra sem mæta upp á að hafa nóg af mat fyrir mannskapinn 🙂

Þetta verður dásamlegur dagur fyrir alla fjölskylduna og hvetjum við gamla sem og nýja félagsmenn að fjölmenna og fagna með okkur í sumarblíðunni.

____________________

LEIÐARLÝSING Í GUÐMUNDARLUND
Guðmundarlundur er rétt hjá hesthúsunum við Heimsenda í Kópavogi (Elliðavatns megin). Breiðholtsbraut er ekin í átt að Víðidal, beygt á ljósunum við Vatnsendahvarf (hjá nýju World Class og Bónus). Keyrt er eftir Vatnsendavegi þar til komið er í þriðja hringtorgið þá er tekin síðasta beygjan að Þingmannaleið. Þar er skilti sem segir Heimsendi. Sú gata er keyrð þar til Heimsendi er á hægri hönd og þá á að vera skilti á vinstri hönd sem segir Guðmundarlundur. Keyrt upp á hæðina þar til komið er að skógræktarsvæði með grænu hliði, þar er Guðmundarlundur. Við munum líka setja appelsínugular blöðrur til að vísa þér leiðin

Upplýsingar

Dagsetning:
23. júní 2022
Tímasetning:
18:00 - 20:00
Vefsíða:
https://forms.office.com/r/a8wcWatp1E

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Guðmundarlundur
Guðmundrarlundur
Kópavogur, 203 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website