Fyrsti hittingur ungliða í Krafti eftir sumarfrí verður miðvikudaginn 12. sept kl 20 í Krafti. Ætlum við að hittast og panta pizzu og fá hugmyndir af einhverju skemmtilegu til að gera saman í vetur 😀
Ungliðar í Krafti er hópur fyrir ungt fólk á aldrinum 18 – 29 ára sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Hópurinn hittist öllu jöfnu tvisvar í mánuði. Umsjón með hópnum hefur Berglind Þóra Haraldsdóttir.
Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn hér:
https://www.facebook.com/groups/316463201785345/