Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Flot með Flothetta.is í boði Krafts

19. desember 2023 @ 18:15 - 19:15

Kraftur býður félagsmönnum upp á flot í umsjá Unnar hjá Flotthetta.is  kl 18:15 dagana 26. sept, 31. okt og 28. nóv. Öllum félagsmönnum Krafts býðst að skrá sig, en eingöngu er hægt að skrá sig í einn tíma í einu.

Flotmeðferð er afurð fyrirtækisins Flothettu og er djúpslakandi vatnsmeðferð, þróuð út frá flotbúnaði Flothettu. Ferlið er úthugsað með það að leiðarljósi að þáttakendur upplifi djúpa slökun, vellíðan og endurnæringu.  Allt miðast þetta að því að næra og örva heilbrigt orkuflæði líkamans og losa út neikvæð áhrif streitu. Tímarnir eru alltaf í umsjón viðurkenndra flotþerapista sem hafa lokið námskeiði í Flotþerapíu og uppfylla kröfur um þekkingu og öryggi í vatnsmeðferðarvinnu.

Flotmeðferðirnar fara fram í upphitaðri einkalaug: Mörkinni, Suðurlandsbraut 64.

Takmörkuð pláss eru í boði hverju sinni. Ef þú hefur skráð þig en forfallast, vinsamlegast láttu okkur vita með því að senda tölvupóst á kraftur@kraftur.org eða í gegnum síma 866-9600

Upplýsingar

Viðburðahaldari

Staðsetning