Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

AðstandendaKraftur

19. september @ 19:00 - 21:00

Event Series Event Series (See All)

AðstandendaKraftur er vettvangur fyrir aðstandendur sem eiga ástvin sem greinst hefur með krabbamein. Aðstandendahittingar eru einu sinn í mánuði á fimmtudagskvöldum frá kl. 19-21 í húsnæði Krafts, Skógarhlíð 8.

Þegar einhver í kringum þig greinist með krabbamein er það mikið áfall og getur kallað á ýmsar spurningar. Ef þú ert maki eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi. Þá getur verið gott að hitta aðra í sambærilegum sporum sem deila svipaðri reynslu.

Dagskrá haust 2024:

  • 19. september – Samkennd í eigin garð. Heiða Brynja sálfræðingur mun fjalla um gagnsemi samkenndar í eigin garð og veita aðstandendum innsýn inn í aðferðir sem getur hjálpað til við að takast á við breyttar aðstæður. Boðið verður upp á spjall í lokin.

Dagskrá fyrir október – desember verður kynnt fljótlega

Frekari upplýsingar um viðburði verða settar inn á Facebook hóp AðstandendaKrafts og er hægt að óska eftir inngöngu í hópinn hér

Umsjón með hópnum hefur, Guðlaug Ragnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi sem hefur einnig reynslu af því að hafa sjálf greinst með krabbamein. Hægt er að hafa samband við hana í gegnum gudlaug@kraftur.org eða í síma 866-9600

Upplýsingar

Dagsetning:
19. september
Tímasetning:
19:00 - 21:00
Series:
Vefsíða:
https://www.facebook.com/groups/208188996929444