Einn miðvikudag hvers mánaðar býður Kraftur upp á opinn viðtalstíma á Landspítalanum, Hringbraut á dagdeild blóð-og krabbameinslækninga 11-B og legudeild blóð – og krabbameinslækninga 11-EG.
Fulltrúi frá Krafti verður á svæðinu frá kl. 10:00-11:00 og svarar spurningum varðandi þjónustu félagsins og réttindi.
Frekari upplýsingar er hægt að fá í síma 866-9600 eða með því að senda póst á kraftur@kraftur.org.