Reykjavíkumaraþon Íslandsbanka var síðastliðinn laugardag þar sem um 15.000 manns tóku þátt og hlupu fyrir málefni sem er þeim hjartfólgið.
Um 300 manns hlupu af Krafti í Reykjavíkurmaraþoninu þetta árið og er félagið þeim ótrúlega þakklátt. En áheitasöfnunin í kringum maraþonið er ein stærsta fjáröflun félagsins á árinu. Það var því mjög þakklátt appelsínuklætt fólk á hliðarlínunni sem hvatti sitt fólk áfram á Ægissíðunni. En það er örugglega það dásamlegasta við þetta hlaup er hvað það myndast mikill samhugur og náungakærleikur.
Við þökkum öllum þeim 300 hlaupurum sem hlupu af Krafti í Reykjavíkurmaraþoninu og hafa nú safnað 4,6 milljónum fyrir félagið. Einnig viljum við þakka öllum þeim sem hétu á hlauparana okkar sem og alla sem hvöttu þá til dáða á hliðarlínunni á laugardaginn. Takk fyrir að hjálpa okkur að hjálpa ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum. Þessi stuðningur og samhugur er okkur ómetanlegur ❤️