Kraftur verður 20 ára á næsta ári og af því tilefni munum við halda Lífið er núna Festival á Hótel Hilton laugardaginn, 12. janúar. Um er að ræða fyrsta viðburð sinnar tegundar hér á Íslandi en þetta er sannkölluð veisla þar sem við verðum með vinnustofur um daginn og partý um kvöldið.
Það verða ýmsar vinnustofur um daginn og þú getur valið t.d.:
- Spuni með Improv Ísland
- Gong og streitulosun frá Jógasetrinu
- Fítonsæfing með leynigesti
- Fyrirlestur um jákvæða sálfræði og húmor með Helgu hjá Happ App
- Núvitundarnámskeið frá Núvitundarsetrinu
- Dans með Háskóladansinum
- Sjálfstyrking með KVAN
- Og fleira
Ekki má gleyma að við verðum svo með þrusu partý um kvöldið þar sem við bjóðum upp á fordrykk og mat og ýmsir tónlistarmenn munu stíga á stokk.
Við munum senda skráningarpóst á vinnustofurnar síðar í desember en til að tryggja þér pláss þá þarftu að skrá þig núna og borga smá staðfesingargjald (2500 kr.) en Festivalið er annars þér að kostnaðarlausu. Þau sem búa út á landi munu meira að segja fá ferðastyrk og gistingu á Hilton sér að kostnaðarlausu.
Nú þarftu bara að skrá þig til að tryggja þér sæti