Söfnuðu 600 þúsund krónum fyrir Kraft

By 4. júní 2026Fréttir

Það ríkti mikil gleði í bækistöðvum Krafts þegar skólasysturnar Katrín & Katrín afhentu félaginu ríflega 600.000 krónur sem þær höfðu safnað. Þær seldu armböndin okkar góðu og söfnuðu þessari myndarlegu upphæð á einungis þremur dögum. RÚV gerði sér ferð í Skógarhlíð í gær og tóku þær stöllur tali;

,,Katrín Rós og Katrín Mjöll eru báðar í tíunda bekk í Kársnesskóla og var söfnunin liður í lokaverkefni þeirra. Stelpurnar eiga báðar nána aðstandendur sem hafa greinst með krabbamein og því varð Kraftur fyrir valinu“.
Takk fyrir framtakið og hugulsemina elsku stelpur
Hér er hægt að horfa á fréttina; https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-06-03-sofnudu-600000-kronum-a-thremur-dogum-477048